Núna er ég sko stolt af minni
Ég er búin að kaupa mér 6 mánaða kort í líkmsrækt
Jebb dugleg stelpa, ég veit að ég grennist ekki á því að kaupa mér kort, en ég er svo mikill tíkall, ég myndi aldrei kaupa mér kort og ekki nota það
Ég byrjaði strax í gær, fór með Birnu og Evu Hlín að lyfta og skokka. Helga, Eva Ösp, Rakel og Ólöf fóru í spinnig, við erum svo duglegar vinkonurnar
Enda ætla ég ekki að vera einhver fitubolla á brúðkaupinu mínu, nei takk
Reyndar er ég hætt að hugsa um að aðalatriðið sé að grennast, auðvitað vill maður alltaf það, en núna er ég bara að hugsa um framtíðina, þetta er sá líkami sem ég er með alla ævi, ég fæ ekkert nýjan þegar þessi er orðin slappur þannig að það er eins gott að hugsa vel um hann 
Jæja núna er farið að rigna í Köben, ojjj þetta er svona skítaveður, rok og rigning
En það er svo kósý að vera inni í svona veðri með kertaljós og hafa það hyggeligt 
Kagsåfest var síðustu helgi, árleg hátíð hjá íslendingunum hérna á Kagså
Hátíðin heppnaðist svona einstaklega vel í ár
Enda var mín að skipuleggja veisluna
Nei nei það þarf marga til að svona hátíð heppnis og það stóðu allir sig svoooo vel
Júlli og co í matarnefnd stóðu sig eins og hetjur, maturinn var hreint út sagt ÆÐI
Andabringur með grænni piparsósu og sætri kartöflumús og ferskt salat, ég fæ vatn í munninn að hugsa um þetta
Salurinn var rosalega flottur, það voru Berglind, Birna og co sem sáu um það
Skemmtiatriðin voru mögnuð Rakel og Eva Ösp sáu um þau
Sjáiði hvað vinkonur mínar eru öflugar, bestar þessar elskur 
Síðan voru við með happdrætti, 13 vinninga sem ég, Eva Hlín og Auður vorum búnar að redda fyrir festina, aðalvinningurinn var flugferð með Flugleiðum
ég var með pottinn með happdrættismiðunum í, gekk á milli í salnum og lét fólk draga númer, svo las ég nafnið á þeim sem fékk vinninginn
Þegar það var komið að aðalvinningnum þá bað ég Jón Ragnar um að draga, við stóðum fyrir framan 100 manns og Jón Ragnar dró miða, svo hló hann og hló og ég spurði hvað stæði á miðanum ,,Þórunn" sagði hann
Þannig að maðurinn minn dró mig og ég fékk flugmiðann
ég fékk nú smá kjánahroll
en fyndið.........
Siðan voru það skemmtiatriðin, það er alltaf keppni á milli Harlem og Beverly Hills, Kagså er skipt í 2 hverfi og þetta eru nöfnin á þeim. Ástæðan er sú að á íbúðunum í Beverly hills er parket á gólfinum eða á íbúðunum í Harlem er dúkur
Allavegana keppnis hófst, nokkrar þrautir allar drepfyndnar, ég lá í kasti og fyrir síðustu þrautina sem gaf 2 stig var Beverly Hills með 3 stig og Harlem 2 stig, spennandi
Þá var komið að Þórunn og Jóni Ragnari, við vorum valinn í síðustu keppnina. Við vorum í 5 manna liði þetta var kapphlaup og hver og einn átti að gera einhverja þraut, Jón Ragnar átti að klæða sig vettlinga og húfu og svo í brjóstahaldara, svo var komið að mér við vorum á eftir af því að Jón Ragnar var svo lengi að smella haldaranum
tótan átti að snúa sér í 10 hringi og drekka einn bjór, það er ekki það besta sem ég drekk, á mjög erfitt með að klára einn bjór á korteri, en keppnismanneskjan mætti á svæðið og ég var ekki lengi að hella bjórnum í mig
Enda voru allir að öskra og hvetja mig
Þegar ég var búin hljóp ég til Júlla og hann var síðastur, hann átti að fara út og kveikja á flugelda, þannig endaði keppnin og Harlem vann
Ji hvað þetta var svooo gaman
Svo var tjúttað til morguns 
Jæja Sigurður Freyr og Nanna vinkona hans eru að koma í heimsókn í dag, þau eru að fara á tónleika og verða hjá okkur á meðan
Gaman að því.
Síðan er það bara skóli skóli, ég þjáist af svo miklum athyglisbrest þessa dagana, þarf alltaf að vera að gera eitthvað sem ég á ekki að vera að gera....... en það styttist í próf þannig að ég verð að vera dugleg, allur nóvember fer bara í LÆRDÓM 
Jæja best að fara að smyrja nesti fyrir ormana mína 
Later.